23desember

Allt að gerst

Jamm og jæja, jólin að koma á morgun og það vill svo til að ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar og skreyta heima hjá mér. Á bara eftir að skúra, þá er allt reddý Laughing

Svo skellir maður sér í norðurlandið á morgun, manni hlakkar til að borða góðan mat og slappa af og njóta þess að vera til.

Jæja ég óska þér gleðilegra jóla


Jólakveðja

23. desember 2008 klukkan 12:22
Amalía Lilja
1 athugasemd
27nóvember

Þetta helst

Ég fór í æfingabúðir með kórnum þar síðustu helgi. Það var farið á laugardagsmorgni og komið til baka til Reykjavíkur á sunnudags eftirmiðdegi. Það var mikið æft og mjög gaman. Svo á laugardagskvöldinu var matur og skemmtiatriði, sem við gerðum sjálf, alveg geggjað gaman.

Þegar maður kom heim, var maður nú svolítið þreyttur, og aðallega í hálsinum en mjög ánægður.

Svo skrapp ég til Ísafjarðar síðustu helgi, það var meiri háttar gaman. Á föstudaginn var nú bara slappað af heima og náttúrulega spjallað um heima og geima ;)
Svo á laugardagskvöldinu fórum við á jólahlaðborð á hótelinu. Það var mjög góður matur og frábær skemmtiatriði,
þetta var hin fínasta skemmtun.

Svo er vinnan komin á nýja staðinn, það gengur nú alveg furðu vel.

Svo er kórinn með jólaprógramm, að singja á nokkrum stöðum. Það er búið að singja einu sinni af 5 skiptum, þetta verður bara gaman,

Svo fyrsti í aðventu næsta sunnudag, maður þarf að fara huga að jólunum. Er aðeins byrjuð að skoða jólakortin. Hvað maður ætlar að senda mörg og svona :)


Jæja ekki fleira að sinni,  over and out  Laughing

27. nóvember 2008 klukkan 15:53
Amalía Lilja
Engin athugasemd
09nóvember

Hvar og hvert sem er

Jamm þá er það komið á hreint að deildin sem ég vinn í mun flytja. Það verður flutt í hið stórglæsilega húsið í Borgartúninu. Það verður gert næsta föstudag, það er nú svolítið skrítin tilfinning að það er einungis bara ein vika eftir í Sóltúninu. Það var svo næs að vera þar, svona heimilslegt og kósí. Það er eins gott að það verði gott í Borgartúninu Undecided.
Þannig að í næstu viku verður unnið og pakkað á sama tíma, það kallar á mjög góða skipulagningu.

Ja svo var staffapartí á föstudaginn, það var fengið sér bjór og svo skellt sér á barinn og svo á Ask að borða. Þetta var mjög gaman og hressandi. Og aldrei þessu vant þá kom maður bara snemma heim, rétt rúmlega hálf tólf, og líðanin daginn eftir bara mjög góð Laughing

Svo er kór búðir næstu helgi, það verður farið á laugardagsmorgun og komið til baka á sunnudagseftirmiðdegi. Það verður vonandi gaman. Á að þjappa hópnum saman og æfa raddirnar sér og saman.

Ja ætla að skella mér í sund, það er svo gott veður, slappa af í heitapottinum og láta hugann reika,

vonandi áttir þú góða helgi..................  yfir og út
09. nóvember 2008 klukkan 11:16
Amalía Lilja
Engin athugasemd
29október

Jamm og jæja

Jæja og jamm,

Eitt sem ég hef ekki prófað áður, það er að vinna í nýju fyrirtæki á gamla vinnustaðnum mínum og verkefnin eru alveg þau sömu Surprised. Ætti maður kannski núna að kalla sig nýju Amalíu, hvenrig væri það nú bara.

Á laugardagskvöldið þá gerði ég nokkuð sem ég hef nú ekki gert í mjög langann tíma, ég var að passa tvö börn. Annað var nú bara sofandi allann tíman og hitt horfði nú bara á sjónvarpið og dundaði sér sjálfur, þannig að ekki þurfti maður nú að hafa mikið fyrir þeim. 
Alltaf gaman að prófa gamla takta, passa svona eins og í denn þegar maður var ungur Smile

Jæja ekki fleira að sinni,
over and out..................
 

29. október 2008 klukkan 08:31
Amalía Lilja
Engin athugasemd
18október

Hitt og þetta

Maður komst ekki í stóðréttir þetta árið, maður fer bara tvíelfdur á næsta ári. Leiðinlegt að komast ekki, en maður getur víst ekki gert allt sem manni langar til Cry.

Ég fór á Villa Vill minningartónleikana síðasta laugardag og það var mjög skemmtilegt. Margir flottir söngvarar og lögin klikka nú ekki. Það var nú bara mjög hressandi á þessum tónleikum Laughing.

Jæja helgin á að leggjast í afslöppun, já og þrif,

Vonandi átt þú góða helgi  Wink


18. október 2008 klukkan 09:49
Amalía Lilja
2 athugasemdir
04október

Stiklað á stóru

Já það er langt síðan síðast.

Ég fór í göngur á útfjallinu á vatnsnesinu á Gant mínum. Það var mjög gaman, en veðrið var nú ekkert skemmtilegt til að byrja með en svo kom þetta dýrðarveður.
Reið ekki heim úr réttunum, geri það bara á næsta ári.

Fór í rafting með vinnunni í Hvítá, það var mjög skemmtilegt.
Það var í fyrstaskipti sem ég fór í blautbúning í rafting, það var svolítið kallt, samt hlýrra heldur en ég bjóst við.

Það er kominn nýr dyrasími, þannig að ég þarf ekki að hlaupa alltaf niður til að hleypa fólki inn, get núna ýtt á takka og fólk labbar inn. Miklu auðveldara fyrir vikið að panta sér mat Glottandi

Búin að vinna mikið í vikunni þannig að helgina á að taka í algjöra afslöppun og leti af bestu gerð og hlaða líkamsrafhlöðurnar.

Jæja ekki fleira að sinni,   vonandi er þín helgi góð Hlæjandi

over and out..........................

04. október 2008 klukkan 17:47
Amalía Lilja
2 athugasemdir
09september

Allt að gerst

Jamm nýja hurðin er komið í gangið og gengur bara vel.
Svo var ég á fundi áðan og það var verið að velja útlitið á dyrasímunum og síðan verða þeir settir upp í næstu viku Hlæjandi

Svo er fyrsta kóræfingin í kvöld, maður er svo spenntur að maður getur varla beðið og tíminn líður eftir því.
Guð hvað það verður gaman að hitta alla og syngja smá :)

Svo er verið að ná í Ostru, hlakka til að vita hvort að hún sé með folaldi eða ekki, vonandi fæ ég fréttir á morgun um það.

Já svo er síminn minn ekki minn vinur þessa dagana, hann er alltaf að slökkva á sér og neitar að senda sms. Spurning hvort að maður ætti eitthvað að taka þetta til sín Hissa, er að reyna að semja við símann minn að hann skuli lifa fram að jólum og svo má hann deyja drottni sínum, sjáum til hvað kollurinn gerir.

Jæja ekki fleira að sinni,   over and out ..............................
09. september 2008 klukkan 18:51
Amalía Lilja
2 athugasemdir
07september

Ýmislegt

Jamm og jæja

Á föstudagskvöldið skellti ég mér í leikhús á leikritið Ástin er diskó Lífið er pönk. Þetta er alveg geggjað góður sögnleikur. Ég skemmti mér rosalega vel og söng með í nokkrum lögum, gat ekki hamið mig Glottandi. Ég sat á svölunum, hef aldrei setið þar áður í Þjóðleikhúsinu, en það var mjög fínnt og gaman.

Svo í gær þá skellti ég mér á Ljósanótt í Reykjanesbæ, það var líka mjög gaman. Í Duushúsinu var rokk og ról síning, saga rokksins á íslandi. Það var mjiög flott.
Svo var gerlistasýning í verkstæðinu hjá listamönnunum, það var mjög flott. Svo
fór ég einnig að skoða kertasýningu. Svakalega flott kerti í allra handa litum og gerðum.
Svo voru tónleikar um kvöldið og flugelda sýning sem var mjög góð.
Svo kom skessan, hún var mjög flott og gaman að sjá hana ganga um fyrir framan sviðið meðan á tónleikunum stóð. Svo var einn bátur úti á sjó sem var með stutta flugelda sýningu, það var alveg æði.

Svo stittist í göngur og réttir, bara næstu helgi, maður fer að telja niður dagana Hlæjandi

Jæja ekki fleira að sinni,   over and out ...................................
07. september 2008 klukkan 10:42
Amalía Lilja
Engin athugasemd
31ágúst

Ekkert og allt

Siðasta vika er nú tíðinda lítil.
Nema að það er komin ný útidyrahurð sem læstist Brosandi.  Biðin er nú ekki nema eitt ár og 3 mánuðir, en hvað loksins komin hurð.  Svo núna er bara bið eftir nýjum póstkössum og nýjum dyrasíma, svo maður þurfi ekki alltaf að hlaupa niður og hleyp fólki inn sem eru að koma í heimsókn.

Á föstudaginn þá fóru ég og Þurý í heimsókn til Jóns á minnkabúið. Við ákváðum að stoppa á Selfossi og næla okkur í mat. Svo á hringtorginu vorum við að ákveða á hvaða stað við ætluðum og fórum svona 8 hringi. Svo var stoppað í Golfskálanum og fengið eldbakað Pizzur, þær voru geggjað góðar.

Svo á laugardag var nú bara slappað af og í dag.
Ég var nú reyndar svo geggjað dugleg, ég fór í morgun í klukkutíma hjólreiðartúr, það var mjög gaman enda líka rosalega gott veður. Ekki annað hægt.

Svo er ég búin að festa mig í göngur á Vatnsnes fjalli, reynar á útfjallinu. Bara gaman að prófa eitthvað nýtt. Þá mun ég fara upp hjá Stöpum og út í rétt, hlakka til að fara í göngur og fara í síðasta reiðtúr þessa árs Hlæjandi

Svo er kórinn að taka til starfa aftur eftir sumarfrí núna í sept. Hlakka til að hitta alla aftur og Maggi Kjartans verður áfram æfingarstjóri, bara stuð.

Jæja ekki fleira að sinni
vonandi hefur þú átt góða helgi...................................
31. ágúst 2008 klukkan 17:27
Amalía Lilja
Engin athugasemd
22ágúst

Vikan

Jamm vikan er nú búin að vera tíðinda lítil, allt svona mein hægt,
það er nú allavega gott, það gerist þá allaveg ekki neitt slæmt á meðan Glottandi

Ég fór nú reyndar í rúmfatalagerinn á þriðjudaginn og keypti eitt stikki rúm, inn í gestaherbergið. Jæja ég fékk það heimsent á miðvikudagskvöldið, rétt um hálf níu.
Ég rosaspennt og ætla að setja rúmið saman og fæturnar undir. Jæja en fæturnir pössuðu ekki, jæja ég fór í gær á RL lagerinn og bað um lengri fætur því þetta passaði engan vegin. Ég fékk nýtt sett og bruna heim og dríf þessu nú upp úr kassanum og ætla sko að smella þessum fótum á, en viti menn ég fékk sömu stærð af fótum takkf yrir, er þetta hægt, alveg greinilega . Maður er nú ekki alveg paránægður, þannig að maður verður víst að skundast á morgun og fá réttar fætur, er að hugsa um að taka með mér málband og mæla fæturnar áður en ég fer heim.

Svo handboltinn í hádeginu, manni hlakkar og kviður fyriri. Hvernig mun leikurinn fara, það er allavega stemning hérna í vinnunni. Það verður bara pizza og langur matur Hlæjandi svo maður geti eitthvað fylgst með.

Svo bara menningarnótt um helgina, maður fer nú að skoða eitthvað, ekkert hvað er ákveðið.

Jæja vonandi munt þú eiga góða helgi Brosandi
over and out...............................................
22. ágúst 2008 klukkan 09:42
Amalía Lilja
Engin athugasemd
15ágúst

Helgi framundan bara

Jamm föstudagur, flöskudagur og nánast frídagur Hlæjandi

Ég komst heim til mín lifandi á miðvikudaginn eftir að hafa hjólað í vinnuna og heim aftur. Það var auðvledara að hjóla heim heldur en ég hélt.
Svo í gær hjólaði ég í vinnuna líka og heim Brosandi alveg svaka dugleg. En það var erfiðara að hjóla heim í þetta skipti þar sem ég var með smá strengi, allt komst þó allavega heim.
Svo planið er núna að hjóla alltaf í vinnuna þegar ég þarf ekki að skjótast eitthvað, maður er svo duglegur Ullandi

Jamm svo er ætlunin að fara út að borða með deildinni minni eftir vinnu í dag og kveðja sumarstarfsfólkið, það er allt að hætta í næstu viku, það verður breyting maður.
Ætlunin er að fara á Tapas, það verður gaman að prófa það.

Svo er ætlunin að heimsækja Jón á horninu á morgun laugardag, þar sem hann er að passa mínkabú alla helgina. Einnig að skoða hestana hans og sveitina auðvitað.
Svo er sunnudagurinn bara ekkert planaður og verður bara opinn Hissa

Jæja ekki fleira að sinni, vonandi áttu bara mjög fína helgi .........................

15. ágúst 2008 klukkan 12:24
Amalía Lilja
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...