13maí

Svona ýmislegt

Það hefur nú ekki viðrar mikið til útreiða þessa daganna, en vonandi lægjir nú einhvern tímann

Ísland komst áfram í eurovision, það verður stemma. Manni hlakkar nú bara til að horfa á laugardaginn Smile

Svo er maður að fara að skella sér í leikhús í kvöld, á Ökutíma
manni hlakkar nú bara mikið til, vonandi mun dagurinn líða fljótt

Það er nú alltaf gaman að kenna hestunum sínum einhvern óþarfa,
t.d. að heylsa og ég er búin að kenna öllu hesthúsinu það
Svo kenndi ég Skugga að kyssa mann, og hann var nú ekki lengi að læra það og núna er hann að kyssa mann í tíma og ótíma og alla aðra hesthúsameðlimi tvíleggjaða Tongue out
bara gaman að þessu

Jæja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu góðan dag í dag, sem og alla aðra daga
13. maí 2009 klukkan 08:23
Amalía Lilja
Engin athugasemd
30apríl

Hitt og þetta

Jamm bara koma 3ja dga helgi, það verður nú gaman.
Helgin er nú samt ekkert plönuð nema að slappa af og vera í hesthúsinu, annað mun maður gera bara svona þegar henntar Surprised

Hestamennskan gengur nú bara vel, sumir dagar eru æðislegir og sumir minna en alltaf gaman.

Svo er bara fyrsti mai á morgun, guð hvað tíminn líður hratt, bara einn og hálfur mánuður eftir með hestana og þá fara þeir í sveitina.

Ja ekki er nú mikið um fréttir þessa daganna

Vonandi átt þú góðan dag í dag sem og alla daga Laughing

30. apríl 2009 klukkan 09:42
Amalía Lilja
1 athugasemd
10apríl

Skírdagur

 Já þá er maður kominn í páskafrí, og það ekkert smá gaman að vera í fríi í 5 daga, sofið út og slappað af og náttúrulega verið í hesthúsinu :)

Það var farið í skírdagsreiðina í Hafnarfjörð í dag, það var nú bara gaman.
Við vorum 4 með 10 hesta. Ég var með 3 til reiða og gékk nú bara vel.
Það var sól og logn á leiðinni í fjörðinn og til baka var sólarlaust, sem betur fer þá var ekki eins heitt.

Mikið gaman að vera búin að fá Gant. Skuggi og Gantur smullu saman eins og flís við rass ;).
Fyrsti reiðtúrinn var á þriðjudaginn og það gékk nú bara vel og hann ofsa kátur og hress :)

Jæja ég vona að þú eigir góða páska
10. apríl 2009 klukkan 00:12
Amalía Lilja
Engin athugasemd
25mars

Glaður í bragði

Já ég fór á hestbak í gær og er nú ekkert búin að vera svakalega ánægð með tölt framfarirnar hjá Skugga mínum. Þá aðallega hvað þetta gengur seint og hægt.
Jæja en svo kom í ljós í gær að hann er með fullt af tölthreyginum og það komu mörg tölt spor í gær.
Svo fékk Eyrún að prófa klárinn og þá sá ég hann, og hann er nú miklu betri en ég hélt. Þá er hann ekkert búinn að vera á hreinu lulli, hann er búinn að vera á bundu tölti Laughing
Ég er svo ánægð, því þetta hef ég gert alveg sjálf og ekki fengið neina hjálp,
bara stemma

Svo verð ég ein með hesthúsið í viku frá næsta fimmtudegi,  gaman gaman.

 

Jæja ekki eru það fleiri fréttir í bili

 

Vonandi áttu góðan dag í dag :)

25. mars 2009 klukkan 10:51
Amalía Lilja
2 athugasemdir
15mars

Ýmislegt og ekkert

Sælir  sælir
Jamm maður hefur nú verið að dunda lítið, maður fer í vinnuna og svo í hesthúsið og svo heim.

Fór reyndar á starfsdag í vinnunni í gær og það var nú bara mjög fínnt,
svo fórum við að anda að okkur helíum, úr helíum blöðrum og segja brandara, og á tímabili var ég næstum því búin að pissa í buxurnar maður,
geggjað fyndið hvað röddin breytist maður

Svo er mars að verða hálfnaður, tíminn líður maður. Svo koma páskar í næsta mánuði og þá fær maður loksins frídag, guð hvað það verður gaman maður.

Ég skellti mér í nudd á fimmtudaginn, þar sem bakið var nú ekki í góðum málum eftir stigafallið. Það vildi nú bara ekki virka sem skildi og heldur ekki rassvöðvarnir voru einnig eitthvað að kvarta maður.
Sem betur fer gat nuddarinn pikkað og potað þannig að allir vöðvar virka núna rétt, eru ekki fastir og tognaðir eitthvað.
Þvílíkur munur maður :)

Ja annars er helgin bara búin að vera róleg og fín,

Jæja ég vona að þú eigir góðan dag í dag, sem og alla daga Laughing
15. mars 2009 klukkan 13:55
Amalía Lilja
Engin athugasemd
03mars

Þetta og hitt, hitt og þetta

Ja hvað hefur maður nú verið að bralla síðan síðast,
fór í staffa partý á Nasa, það var geggjað gaman. Dansaði af mér lappirnar næstum því.

Buin að fara nánast alla daga upp í hesthús.
Skuggi var járnaður að framan á sunnudaginn, þannig að hann er kominn á 10mm að framan og vonandi kemur töltið hraðar hjá okkur núna

Á laugardaginn var matarboð heima hjá mér, mjög gaman og við átum góðan mat. Drukkið var gott rauðvín og allir hressir.
Já sumir voru hressari en aðrir þar sem gestirnir fóru í poppslag, og það var popp út um allann sófa og nánast allt stofugolf.
Mikið gaman að þrífa það á sunnudaginn Yell

Datt í stiganum á sunnudaginn, beint á mjöðmina náttúrulega, þegar ég var að fara með fullt fangið af þvotti niður í þvottahús. Leiðinlegast að detta ekki á þvottinn sjálfan, en jæja.
Er orðin fallega blá og græn, marið er að koma út og líðanin er miklu betri Laughing

Jæja ekki fleira að sinni,

eigðu góðan dag í dag, sem og alla daga Smile

03. mars 2009 klukkan 20:08
Amalía Lilja
Engin athugasemd
12febrúar

á hestum skemmti ég mér tralala tralalala tralalalalala

Jamm ég skellt mér í hesthúsið í gær, og ákvað að skella mér bara í hringgerðið með tvöfaldann taum.
Jæja ég og Ópera byrjuðum, það vildi svo til að hún er nú í miklu betra formi en ég, þannig að ég þurfti að láta merina feta á milli svo að ég næði andanum Surprised´. Og þetta gékk bara vel hjá okkur, miðað við það að við vorum þarna með tvöfaldann taum í fyrsta skipti.
Svo fórum ég og Skuggi, og þá var ég náttúrulega heit eftir Óperu Wink
en okkur Skugga gékk bara vel, so reyndum við smá tölt í hringnum og það gékk bara vel, sá að hann pakkaði sér saman en töltið ennþá mikið tvítaktað en á góðri leið. .

Svo bara kominn fimmtudagur, vikan ekkert smá fljót að líða
helgin bara framundann

jæja ekki fleira að sinni
vonandi áttu góðan dag :)

12. febrúar 2009 klukkan 10:59
Amalía Lilja
Engin athugasemd
10febrúar

Hitt og þetta, þetta og hitt

Jamm hestaþjálfunin gengur svona bærilega bara. Maður hefur farið á bak alla daga, nema í dag þá gaf ég Skugga frí til að hlaða batteríin.
Hann er bara búin að vera mjög góður, enginn krippa og enginn læti Laughing. Spurning hvort að það sé þjálfunin mín eða þroski klársins, ég segji bara bæði, bæði er gott Smile

Svo er partý í vinnunni næsta föstudag á Nasa með Páli Óskari, jeyj jeyj
hann kann sko að þeyta skífurnar og ætli maður dansi ekki af sér skóna Surprised

Jæja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu góðan dag
10. febrúar 2009 klukkan 19:59
Amalía Lilja
Engin athugasemd
03febrúar

Óvængur glaðningur

Já ég fékk óvæntan glaðning í gær, Skuggi kom til Reykjavíkur Laughing
Það er bara glaumur og gleði.
Það var svakalega gaman að fá hann og núna get ég ekki beðið að vinnudeginum verði lokið svo að maður geti skondrast upp í hesthús að dúllast Cool

Svo var einnig gaman að hitta hesthúsafélaganna, þ.e. hina hestana og svo hitti maður náttúrulega annan hesthúsaeigandann, það var gaman. Hef ekki hitt hann svo lengi.

Svo núna þarf maður bara að gera þjálfunarplan, bara gaman.


Var svo dugleg um daginn að ég ákvað að pússa svenfherbergisskápana mína, það tók 2 vikur, að pússa og mála.
Og núna lítur þetta bara mjög vel út, þó svo að ég hafi gert þetta sjálf Smile
klapp á öxl fyrri mér, er svo montinn að hafa gert þetta alveg sjálf, fékk enga hjálp

vonandi áttu góðan dag í dag  :)
03. febrúar 2009 klukkan 09:52
Amalía Lilja
Engin athugasemd
02febrúar

Helgin já

Jamm ég skellti mér í norðurlandið á föstudaginn, strax eftir vinnu.
Og þar sem maður er svo mikið VIP í vinnunni fékk ég að hætta á hádegi Laughing
Það var skundað beint norður og skellt sér í hesthúsið og á bak.
Rosalega gott að komast á hestbak á Gant og hann var nú bara í fjöri.
Svo auðvitað skellt sér á Skugga inni í gerði þar sem hann var skeifulaus og það gékk ljómandi vel.

Svo járnuðum við pabbi Skugga á laugardaginn, Diddi kom reyndar að hjálpa okkur, hann hélt löppunum þar sem eg var þarna eins og jójó
.
svo skellti ég mér á bak og það var mjög gaman, fórum í éljagangi og var að drepast í augunum

Svo var farið til reykjavíkur á sunnudaginn með góða strengi í lærvöðvum, og það var erfitt að labba upp stigann í vinnuna í morgun.

Jæja ekki fleira að sinni

vonandi átt þú góðan dag í dag Smile
02. febrúar 2009 klukkan 12:53
Amalía Lilja
1 athugasemd
11janúar

Árið og allt það

Jæja langt síðan síðast, ég vil óska öllum gleðilegs nýrs árs með þökk fyrir það gamla.

Ég var í reykjavík á áramótunum og það var bara gaman, þó svo að það hafi skotið upp minna þessi áramót heldur en þau síðustu.

Ég var svo heppin að hafa vinkonu mína hjá mér í heimsókn í síðustu viku, og það var æðislega gaman og létti vinnuvikuna mikið og vikan flaug áfram.

Svo um helgina ákvað ég að lakka fataskápahurðinar mína, ég hélt að það væri nú ekkert mál. En viti menn, þetta er heljarins vinna maður.
Ég byrjaði á föstudagskvöldið á að pússa og mála baðherbergishurðina og það tók ekki nema 5 klst, og ég var alveg búin um kvöldið.

Jæja ég hélt áfram og fékk lánaða pússvél á laugardaginn til að taka skápahurðirnar, það gékk rosalega vel og þegar ég var að klára neðri skápahurðirnar þá pússaði ég snúruna og allt rafmagnið fór af, snúran er ónýt en vélin í lagi, guði sé lof.
Jæja ég handpússaði restina og ég er að drepast úr þreytu í handleggjunum.
Veit allavega núna að ég verð ekki iðnaðarmaður, jédúddamía hvað þetta er mikil vinna maður.

Annars er bara allt gott,

Ekki fleira að sinni, hafðu það gott í dag sem og alla daga Smile

11. janúar 2009 klukkan 19:26
Amalía Lilja
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...