Fyrsti skóladagurinn
Fyrsti skóladagurinn var í dag og fyrsti tíminn byrjaði kl.10:00, ekki slæmt það
Fyrsti tíminn var vefjafræði og í honum er mikið verklegt, og guð hvað manni hlakkar til. Kennarinn talar svona lala ensku en reynir að útskýra ef maður skilur ekki.
Svo næsti tími var Latína takk fyrir. Það var nú svolítið skrítinn tími. Þar er enginn skólabók, maður þarf einungis að skrifa niður það sem kennarinn segjir og það sem hann skrifar á töfluna, takk fyrir.
Jæja ég fór í bæinn í dag til að kaupa síðust tvær bækurnar sem ég átti eftir að kaupa, því hinar bækurnar keypti ég á amazon.uk og fæ þær vonandi í næstu viku. Og ein bókin veterinary anatomy of domestic mammals kostaði ekki nema 40.000 kr takk fyrir. Það er sko verið að ríja mann inn að skinni á fyrstu önninni, þannig að það verður bara pasta með tómatsósu í matinn næstu tvær vikurnar
.Svo var farið í læknisbúð og keyptur sloppur, latex hanskar og pinsetta
, maður er bara að verða svona professional 
Svo var fengið sér að borða á steikhús london áður en heim var farið.
Svo á morgun er kynningardagur skólans. Það byrjar kl.10:00 og það verður spennandi að sjá.
Ja ekki fleira að sinni,
vonandi áttu góðan dag
01. október 2009 klukkan 19:34
Amalía Lilja
Amalía Lilja