13mars

Laugardagur til lukku

Já mér finnst dagurinn í dag vera bara alveg ágætis dagur.
Sérstaklega þar sem ég keypti mér þessa fínu pólsku tölvu í gær og allt var á pólsku.
Og viti menn, í dag þá fann ég takka til að hafa íslenskt lyklaborð Laughing, bara æði gæði. Ekkert smá gaman

Núna á ég bara eftir að finna enskuvæðingar takkann til að breyta internet exporer yfir á ensku, þá er allt komið

Ég verð nú að segja frá því þegar við stöllur fórum í bæinn í gær að versla. Við fórum bara beint úr skólanum, og við þurftum að komast yfir í hinn endann á varsjá og þurftum að skipta um strætó á leiðinni. fyrst að taka einn strætó niður í bæ og svo annann út í enda, jæja við tókum bara næsta strætó, ´skv leiðarvísi átti hann að stoppa hjá nowy swiat, jæja við fórum inn nr.166 og bara við á spjallinu, svo heyrist allt í einu í vinkonu minni, heyrðu við mistum af stoppinu okkar, strætóin beygir í ranga átt. ég fékk sjokk en við ákváðum bara að sitja lengur því strætóinn fór næstum því sömuleið. Jæja svo komum við að endastöðinni, og það var í einhverju gettói, því þar var svona varasamt lið, með hávaða og svona.
Jæja við förum til baka með öðrum strætó og í sætinu fyrir framan okkur var sofandi maður sem lyktaði geðveikt ílla, og í sætinu við hliðina á okkur voru tveir eldri menn sem lyktuðu af brennivíni og voru í hörku hávaða sömum samræðum.
Allavega þá mun ég passa mig á að missa ekki af stoppistöðunum mínum í framtíðinni,  þvílikt og annað eins


en jæja , maður hefur nú bara gott að lenda svona í ýmsu, það herðir mann bara Wink

Jæja ég vona að þú eigir góðan dag
13. mars 2010 klukkan 09:54
Amalía Lilja
Engin athugasemd
12mars

Jebb, sumir dagar eru skemmtilegir

Jamm og tad

Talvan min er bilud og madur er nu ekki buinn ad vera neitt sattur vid tad. Einnig eru vandraedi ad finna vidgerdaradila,  og ekki getur mdur verid tolvu laus tannig ad madur fjarfesti i odyrustu tolvunni a markadnum. Tad er bara tveir gallar, i fyrsta lagi er polsk lyklabord tannig ad eg er ekki med neina islenska stafi, svo i odru lagi ta er hun a polsku og eg finn ekki breytingar takkann, til ad fa tolvuna a ensku Undecided, svolitid pirrandi en venst vonandi.
Tad er nu spurning hvort ad madur laeri nu polsku hradar ef madur er med allt a polsku ??  hvad heldur tu ?

Annars er litid ad fretta, skolinn byrjadi 15.feb og a fullu, tad eru ekki nema 10 annar prof tessa onnina, tad var eitt i sidustu viku, tvo i neastu viku. Tannig ad ef einhverjum langar ad koma ut og elda ofan i mig, tek eg tak med tokkum Laughing

Ja ekki fleira ad sinni,
fardu vel med tig i dag og alla adra daga :)
12. mars 2010 klukkan 21:13
Amalía Lilja
Engin athugasemd
04febrúar

Ţannig er nú ţađ

Já það er nú komið mjög langt síðan ég hef ritað eitthvað hér.
Núna er maður kominn í vetrarfrí og það er nú bara mjög fínnt. Maður er nú bara að slappa af svona fyrstu daganna og svo sér maður til hvað maður gerir svo af sér Wink

Ég er að passa þrjá fiska fyrir eina bekkjarsysturina, því hún skellti sér heim í fríinu. Og fiskarnir haga sér bara mjög vel, en eru reyndar lítið ræðnir, og það gæti stafað af feimni Yell

Ja það er nú ekki laust við það að manni langi á hestbak, en það verður að bíða betri tíma. 

Jæja ekki fleira að sinni, 
vonandi átt þú góðan dag í dag sem og alla aðra daga  
04. febrúar 2010 klukkan 09:01
Amalía Lilja
1 athugasemd
01nóvember

Gamn ađ skemmta öđrum

Ég ákvað í gær að festa kaup á dýnu í rúmið mitt, þar sem blessaðan svampdýnan er ekki alveg nægilega góð fyrir mitt bak og axlir.

Jæja ég og Rachel fórum í næstu verlunargötu og löbbuðum um þangað til að við fundum búð sem selur rúm og þessháttar dót.
Jæja við versluðum og svo þegar við vorum búnar að borga þá fenguð við að vita að það er ekki heimsent á laugardögum, við gætum fengið dýrurnar á mánudaginn. Við gátum sko ekki beðið fram á mánudag, við vildum dýnurnar núna, strax. Jæja þar sem við vorum ekki nema rétt rúmar 20.mín að labba að búðinni ákváðum við að labba bara með þær heim. við héldum að það yrði sko ekkert mál Laughing, enda hörku gellur á ferð.

Jæja við leggjum af stað og erum ekki búnar að labba nema svona sirka 400 m þá datt mér í hug að það væri nú kannski hægt að hringja á leigubíl, þannig að ég fer inn í næstu búð og bið afgreiðsludömuna hvort að hún geti hringt á taxa fyrir mig. Daman hringir og talar við taxa, nei við getum ekki fengið taxa núna fyrir tvær dýnur og tvær stelpur því það þarf að panta svona stóra bíla fyrirfram Yell, ert ekki að grínast í mér.

Jæja við bítum í þetta sæta epli og höldum áfram að labba heim. og fullt af fólki horfði á okkur og hló.
Svo þurftum við að fara yfir gatnamót með 4 línum, og allir í bílunum skellihlóu.
Allavega gaman að geta lyft annarra manna degi upp.

Jæja við vorum ekki nema eina klst og 15 mín (sirka áætlað) á heimleiðinni og ég svaf eins og steinn á minni nýju og flottu dýnu Laughing

Jæja ég vona að þú hafir átt góða helgi

01. nóvember 2009 klukkan 08:16
Amalía Lilja
2 athugasemdir
30október

Lífiđ og tilveran

Að verlsa sér að borða er ævintýri Tongue out því allar útskýringar á matvörum eru á pólsku. Þannig að þegar farið er að versla þá er það sko enginn skot túr, heldur tekur það svona 2-5 klst, eftir því hvað maður þarf að versla mikið. Fyrst skoðar maður einhver merki, svona til útilokunar og ef það ekki gengur þá skoðar maður utanumhaldið hvort það segji manni eitthvað til, og oft kaupir maður bara eitthvað til að prófa og lætur slag standa og vonar þetta verði bragðgott Surprised
Pólland er mikið svínakjötsland, það er hægt að kaupa svín í allrahanda skorningum og matreiðslum.
Svo þegar maður vill kaupa nautahann þá verður bara að taka pakkingu og bera litinn saman :)
nota útilokunaraðferðina , bara stemma

Allavega eiga allir sem eiga erfitt með að lesa og allir þeir sem eru nýjbúar í nýjulandi alla mína sambúð að versla sér mat.

Jæja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu frábæra helgi Laughing

30. október 2009 klukkan 20:26
Amalía Lilja
1 athugasemd
12október

mismunandi

Ég fór í dag í bankann til að greiða húsaleiguna á heimavistinni. Ég beið í röð, alveg siðprúðuð. Það er ekki númera kerfi hérna heldur bíður maður í röð. Jæja svo kom röðin að mér og ég greiddi húsaleiguna og lét gjaldkerann fá peninginn, svo bað gjaldkerinn mig um meiri pening. Það kostar víst að greiða reikninga, maður þarf að greiða fyrir hvern reikning fyrir sig, þannig að ég þurfti að greiða 1,50 PLN fyrir að fá að greiða húsaleiguna. Ég varð nú frekar hissa, þar sem maður er nú vanur að fara í banka á íslandi og þurfa ekki að greiða fyrir þjónustuna.

Við fáum blöð frá kennara, en einungis eitt eintak þannig að maður þarf alltaf að ljósrita hvert eintak fyrir sig. Jæja það venst nú alveg, því það er mjög ódýrt að ljósrita, sem betur fer Wink

Núna er önnur vikan af skólanum hafin og það legst nú bara vel í mann

Jæja ég vona að þú eigir góðan dag

12. október 2009 klukkan 13:56
Amalía Lilja
1 athugasemd
11október

ţannig er ţađ sko

Þá er fyrsta heila skólavikan búinn. Guð hvað ég var búin að gleyma hvað er farið yfir mikið efni í einum tíma maður, en jæja þetta lagast.

Ég er í dýralíffærafræði sem er mjög áhugaverð en ég þarf að læra beinagrindina á ensku og einnig latínu, takk fyrir. 
stuð og temma Yell

Það eru tveir srtákar úr dýralæknanáminu að æfa rúbbí með The Warsaw frogs.
Og það var leikur í gær, og auðvitað fór maður til að stiðja sína menn Laughing
Ég og Annika fórum hennar bíl og vorum með kort með okkur. Jæja við vorum ekki alveg sammála hvernig ætti að lesa kortið og við viltumst aðeins, en komust samt á leikinn, viti menn.
Jédúddamía hvað þetta er harður leikur, það er bara togað í af öllu afli og tæklað á legi og láði. Margir fengu glóðurauga, með ýmsar skrámur á fótum og bólgin hné og axlir.
ÉG veit það fyrir víst að ekki langar mig að æfa þessa íþrótt.
En það var gaman að sjá einn leik og reyna skilja leikreglurnar Smile
Og við komust heilar heim, ekkert vesen


Ekki fleira að sinni, ég vona að þú hafi átt góða helgi
11. október 2009 klukkan 12:22
Amalía Lilja
Engin athugasemd
07október

allt á fullu

Jebb skólinn er byrjaður á fullu, núna er bara heil vika takk fyrir Surprised

Svo er ég búin að fara í einn fyrirlestur í vefjafræði og einn verklegan tíma og það er svo próf í næstu viku, maður spyr bara er ekki í lagi ???

Kennararnir tala svona sæmilega ensku, stundum á maður alveg fullt í fangi með að skilja hvað þeir eru að meina, ekki út af orðaforða heldur framburði Undecided, en allir voðalega hjálplegir ef maður skilur ekki neitt.

Síðasta laugardag fór ég í bíó, fór á 3D á final destination og hún var nú bara skemmtileg. og hérna í póllandi er ekki hlé á myndinni sem er bara æði Laughing

Ég var búin að gleyma því að þegar maður er í háskóla þá dressar maður sig alltaf upp þegar maður mætir í tíma. Allar sænsku stelpurnar og norsku stelpurnar mæta málaðar í skólann og eru vel stíleseraðar,
það er ekkert joggingbuxur og peysa, jú ég.
Það er bara stuð á þessu

Ég kíkti á bókasafn skólans í á mánudaginn, svona til að kanna aðstæður. Og það er ekki þráðlaust net þar, jédúddamía og ekki heldur í skólanum sjálfum. Þetta var nú eiginlega stórskrítið, allt annað heldur en maður er vanur hjá HÍ.
En reddast alveg samt, því í fyrirlestrum skrifar maður allt í stílabók, maður er ekki með tölvuna með sér í skólann.
En leiðinlegra með bókasafnið, en ég læri þá bara heima hjá mér

Fór í fyrsta pólsku tímann í dag, og það var nú bara smá spennandi. Guð hvað maður getur ekki talað neitt, og greyið kennarinn spurði hvort að enska væri tungumálið á íslandi. Ég leiðrétti hana og sagði að  það væri íslenska. Varð svolítið hissa, en svona er veröldin.

Ég er með fólki frá írlandi, englandi, ísrael (tveir strákar), kýpur, noregi, svíþjóð, suður-afríku (ein stelpa sem á pólska foreldra og hún er hvít) og krakkarnir frá noregi og svíþjóð tala saman á sínu tungumáli en við hin notumst við enskuna, auðvitað.
En það er gaman að hitta svona mikið mismunandi fólk Laughing

Jæja ætli það sé nú ekki best að koma sér að lærdómnum, þó svo manni langi út í 24.stiga hita og sól

eigðu góðan dag Cool

07. október 2009 klukkan 13:16
Amalía Lilja
Engin athugasemd
03október

Laugardagur til lukku

Góðan og blessaðan daginn

Það var kynningardagur í gær í skólanum, og því engir tímar. Það var farið í gegnum hvað þarf að gera og svo framvegis.

Svo um kvöldið planið að fara niður í bæ á bar og djamma.
Fyrst var farið í partý heim til stelpna sem eru á öðru ári, þar mjög gaman. Það voru við nokkur á fyrsta ári og svo nokkur á öðru ári.
Svo þegar við vorum komin niður í bæ þá hittum við nokkra á 3ja ári líka, þetta var nú bara stemma

Svo er aftur partý í kvöld Surprised, veit ekki alveg hvar það verður en það kemur í ljós

Jæja vonandi áttu góða helgi

Yfir og út

03. október 2009 klukkan 09:48
Amalía Lilja
2 athugasemdir
01október

Fyrsti skóladagurinn

Fyrsti skóladagurinn var í dag og fyrsti tíminn byrjaði kl.10:00, ekki slæmt það Smile
Fyrsti tíminn var vefjafræði og í honum er mikið verklegt, og guð hvað manni hlakkar til. Kennarinn talar svona lala ensku en reynir að útskýra ef maður skilur ekki.
Svo næsti tími var Latína takk fyrir. Það var nú svolítið skrítinn tími. Þar er enginn skólabók, maður þarf einungis að skrifa niður það sem kennarinn segjir og það sem hann skrifar á töfluna, takk fyrir.

Jæja ég fór í bæinn í dag til að kaupa síðust tvær bækurnar sem ég átti eftir að kaupa, því hinar bækurnar keypti ég á amazon.uk og fæ þær vonandi í næstu viku. Og ein bókin veterinary anatomy of domestic mammals kostaði ekki nema 40.000 kr takk fyrir. Það er sko verið að ríja mann inn að skinni á fyrstu önninni, þannig að það verður bara pasta með tómatsósu í matinn næstu tvær vikurnar Tongue out.

Svo var farið í læknisbúð og keyptur sloppur, latex hanskar og pinsetta Laughing, maður er bara að verða svona professional Wink

Svo var fengið sér að borða á steikhús london áður en heim var farið.

Svo á morgun er kynningardagur skólans. Það byrjar kl.10:00 og það verður spennandi að sjá.

Ja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu góðan dag
01. október 2009 klukkan 19:34
Amalía Lilja
Engin athugasemd
30september

miđvikudagur, jebb

Við vorum nokkrar sem ákváðum að skella okkur í IKEA svona til að kaupa nokkra nauðsynjahluti. Annika er með bílinn sinn og ég ákvað að fara með henni í bílnum en hinar stelpurnar ætluðu að taka strætó

Ætlunin var að setja dótið í bílinn, jæja við vorum ekki með kort að varsjá, nema af miðbænum. Þannig að við þurftum bara að finna einhverja stóra götu sem var á kortinu. Og auðvitað eftir smá hringi þá lentum við á réttu götunni, ég hef ekki hugmynd hvernig. Jæja svo hittum við stelpurnar í IKEA og við komum á sama tíma Laughing, geri aðrir betur.

Það var verslað nauðsynjahlutir og svo var bílinn hlaðinn af dóti, og þá komust ekki nema ég og Annika í bílinn svo við fórum til baka. Og það var nú reyndar svolítið erfiðara, því þá var klukkan rétt um 17:00  og allir á heimleið, jédúddamía maður. Umferðin var alveg svakaleg og við ekki alveg vissar hvernig við ættum að komast heim. En heim komust við og vorum ekki nema 75 mín, og ferðin ætti að taka svona ca 30-40 mín Wink

Þannig að þegar við komum heim þá fór ég bensínstöðina, sem er beint fyrir utan og keypti mér kort af varsjá til að lenda ekki í þessu. Og einnig að geta farið um í strætó.

Þetta var nú bara gaman að villast svona, þá sá maður fullt af dóti, þó svo að við hefðum ekki stoppað

Jæja þegar ég kom þá voru engin sæng og koddi. Þannig að á laugardaginn fór ég að versla mér það dót. Ég labbaði um og var auðvitað að leita að sæng og kodda eins og maður er vanur. Jæja ég keypti mér sæng sem er 155 sm á breidd og 200 cm á lengd, þannig að ég ætti að geta sofið með hana langsum og þverssum Yell.

Jæja fyrsti skóladagurinn í dag, reyndar ekki beint skóli heldur opnunarathöfn þar sem verður farið yfir hvernig þetta mun vera

Svo er búið að vera svo heitt í herberginu hjá okkur og við erum alltaf með galopna glugga. Svo í gær þá varð mér litið á opnin, bara svona ganni. Þá var ofnin í botni Tongue out, ekki nema von að það hafi alltaf verið svo svakalega heitt hjá okkur Laughing
Svona smá byrjenda mistök hjá okkur


Jæja vonandi áttu góðan dag í dag
30. september 2009 klukkan 07:43
Amalía Lilja
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...