09janúar

Lífiđ

Lífð er svo yndislegt og það er svo einkar skemmtilegt að búa með sjáflselsku fólki sem tekur ekki tillit til neins í kringum sig, alveg frábært Yell
Hjállpar einbeitingunni svaðallega. 

Annars er frelsið yndislegt og ég geri það sem ég vil

yfir og út 
09. janúar 2012 klukkan 18:34
Amalía Lilja
Engin athugasemd
19október

Sumt fólk

Sumir skólafélagar mínir ganga ekki heilir til þroska, núna eru nokkrir sem eru að taka áfanga sem er ætlaður fyrir fjórða árið og það er hernaðar leyndarmál, og ekki veit ég afhverju. Guð hvað þetta fólk þarf að þroskast og afhverju ekki að láta aðra vita að þetta sé hægt. 
Sumir þurfa alltaf að vera betri en aðrir þó svo það sé á fáránlegan hátt. 

Ja annars gengur 3ja árið bara vel í mann og flest fögin bara ágæt og nokkur bara mjög áhugaverð, 

ja yfir og út

 
19. október 2011 klukkan 19:43
Amalía Lilja
September
Engin athugasemd
14október

Helgarfrí

Föstudagur og helgarfrí framundann og bara gaman að því.

Annars helgin lítið plönuð nema að slappa af og njóta þess að vera til.
Rosalega gaman að byrja 3ja árið og núna sér maður að þetta tekur enda einhvern tímann :)
Skólafélagar, bæði gamlir og nýjir hittust síðustu helgi á Tortilla factory og þar var heljar stuð og stemma,
og ýmislegt brallað og sallað.

Jæja ekki fleira að sinni 
14. október 2011 klukkan 16:42
Amalía Lilja
Engin athugasemd
12október

Bara prófun

Það er liðinn heil langur tími síðan ritað var á þessa síðu, jeminn eini, og auðvitað varð ég að prófa hvort að síðan virkaði ennþá og auðvitað gerir hún það  Laughing Wink

Skólinn er byrjaður á fullu, vika twö í gangi og allt að gerast. 
Er í fleiri skemmtilegum fögum núna heldur en í fyrra og meira verklegt sem er alltaf skemmtilegra :)

Ja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu góðan dag
yfir og út Cool 

12. október 2011 klukkan 17:55
Amalía Lilja
Engin athugasemd
31mars

Páskar og herleg heit

Ég á bara eftir að fara í einn tíma í dag og þá er ég kominn í páskafrí Laughing, þannig að klukkann 17:00 verð ég komin formlega í páskafrí.

Það var svo gott veður í gær, 18 stiga hiti og sól þannig að við vinkonurnar ákvaðum eftir skóla, tæplega tvö að skella okkur bara í bæinn og labba aðeins um og fara á kaffihús.
Jæja þegar við vorum komnar í bæinn þá vorum við svo svangar og ákváðum að prófa að fara á subway Wink. Það gékk nú bara alveg ágætlega en hérna er ekki til bræðingur og ekki ostasósa en kjúllinn minn bragðaist bara vel. Svo var ég að velja brauð og reyndi eftir bestu getur að bera fram orðið rétt, þá spurði afgreiðsludaman mig á ensku á móti, ég held að hún hafi ekki skilið pólskuna mína Surprised, og ég sem hélt að ég hefði svo góðan framburð Innocent.

Svo löbbuðum við í gamla bæinn og keyptum okkur í, mixaðann súkkulaði og vanillu og guð hvað ísinn var góður á bragðið, nammi nammi

Ég kem ekki heim í þessu páskafríi og missi af skírdagsreiðinni í reykjavík, þvilíkur bömmer, jæja kem bara öflug á næsta ári.

Annars er óákveðið hvað skal bralla í þessu fríi, fyrir utan að lesa skólabækurnar.

Allavega hafðu það sem allra best

yfir og út
31. mars 2010 klukkan 11:12
Amalía Lilja
1 athugasemd
13mars

Laugardagur til lukku

Já mér finnst dagurinn í dag vera bara alveg ágætis dagur.
Sérstaklega þar sem ég keypti mér þessa fínu pólsku tölvu í gær og allt var á pólsku.
Og viti menn, í dag þá fann ég takka til að hafa íslenskt lyklaborð Laughing, bara æði gæði. Ekkert smá gaman

Núna á ég bara eftir að finna enskuvæðingar takkann til að breyta internet exporer yfir á ensku, þá er allt komið

Ég verð nú að segja frá því þegar við stöllur fórum í bæinn í gær að versla. Við fórum bara beint úr skólanum, og við þurftum að komast yfir í hinn endann á varsjá og þurftum að skipta um strætó á leiðinni. fyrst að taka einn strætó niður í bæ og svo annann út í enda, jæja við tókum bara næsta strætó, ´skv leiðarvísi átti hann að stoppa hjá nowy swiat, jæja við fórum inn nr.166 og bara við á spjallinu, svo heyrist allt í einu í vinkonu minni, heyrðu við mistum af stoppinu okkar, strætóin beygir í ranga átt. ég fékk sjokk en við ákváðum bara að sitja lengur því strætóinn fór næstum því sömuleið. Jæja svo komum við að endastöðinni, og það var í einhverju gettói, því þar var svona varasamt lið, með hávaða og svona.
Jæja við förum til baka með öðrum strætó og í sætinu fyrir framan okkur var sofandi maður sem lyktaði geðveikt ílla, og í sætinu við hliðina á okkur voru tveir eldri menn sem lyktuðu af brennivíni og voru í hörku hávaða sömum samræðum.
Allavega þá mun ég passa mig á að missa ekki af stoppistöðunum mínum í framtíðinni,  þvílikt og annað eins


en jæja , maður hefur nú bara gott að lenda svona í ýmsu, það herðir mann bara Wink

Jæja ég vona að þú eigir góðan dag
13. mars 2010 klukkan 09:54
Amalía Lilja
Engin athugasemd
12mars

Jebb, sumir dagar eru skemmtilegir

Jamm og tad

Talvan min er bilud og madur er nu ekki buinn ad vera neitt sattur vid tad. Einnig eru vandraedi ad finna vidgerdaradila,  og ekki getur mdur verid tolvu laus tannig ad madur fjarfesti i odyrustu tolvunni a markadnum. Tad er bara tveir gallar, i fyrsta lagi er polsk lyklabord tannig ad eg er ekki med neina islenska stafi, svo i odru lagi ta er hun a polsku og eg finn ekki breytingar takkann, til ad fa tolvuna a ensku Undecided, svolitid pirrandi en venst vonandi.
Tad er nu spurning hvort ad madur laeri nu polsku hradar ef madur er med allt a polsku ??  hvad heldur tu ?

Annars er litid ad fretta, skolinn byrjadi 15.feb og a fullu, tad eru ekki nema 10 annar prof tessa onnina, tad var eitt i sidustu viku, tvo i neastu viku. Tannig ad ef einhverjum langar ad koma ut og elda ofan i mig, tek eg tak med tokkum Laughing

Ja ekki fleira ad sinni,
fardu vel med tig i dag og alla adra daga :)
12. mars 2010 klukkan 21:13
Amalía Lilja
Engin athugasemd
04febrúar

Ţannig er nú ţađ

Já það er nú komið mjög langt síðan ég hef ritað eitthvað hér.
Núna er maður kominn í vetrarfrí og það er nú bara mjög fínnt. Maður er nú bara að slappa af svona fyrstu daganna og svo sér maður til hvað maður gerir svo af sér Wink

Ég er að passa þrjá fiska fyrir eina bekkjarsysturina, því hún skellti sér heim í fríinu. Og fiskarnir haga sér bara mjög vel, en eru reyndar lítið ræðnir, og það gæti stafað af feimni Yell

Ja það er nú ekki laust við það að manni langi á hestbak, en það verður að bíða betri tíma. 

Jæja ekki fleira að sinni, 
vonandi átt þú góðan dag í dag sem og alla aðra daga  
04. febrúar 2010 klukkan 09:01
Amalía Lilja
1 athugasemd
01nóvember

Gamn ađ skemmta öđrum

Ég ákvað í gær að festa kaup á dýnu í rúmið mitt, þar sem blessaðan svampdýnan er ekki alveg nægilega góð fyrir mitt bak og axlir.

Jæja ég og Rachel fórum í næstu verlunargötu og löbbuðum um þangað til að við fundum búð sem selur rúm og þessháttar dót.
Jæja við versluðum og svo þegar við vorum búnar að borga þá fenguð við að vita að það er ekki heimsent á laugardögum, við gætum fengið dýrurnar á mánudaginn. Við gátum sko ekki beðið fram á mánudag, við vildum dýnurnar núna, strax. Jæja þar sem við vorum ekki nema rétt rúmar 20.mín að labba að búðinni ákváðum við að labba bara með þær heim. við héldum að það yrði sko ekkert mál Laughing, enda hörku gellur á ferð.

Jæja við leggjum af stað og erum ekki búnar að labba nema svona sirka 400 m þá datt mér í hug að það væri nú kannski hægt að hringja á leigubíl, þannig að ég fer inn í næstu búð og bið afgreiðsludömuna hvort að hún geti hringt á taxa fyrir mig. Daman hringir og talar við taxa, nei við getum ekki fengið taxa núna fyrir tvær dýnur og tvær stelpur því það þarf að panta svona stóra bíla fyrirfram Yell, ert ekki að grínast í mér.

Jæja við bítum í þetta sæta epli og höldum áfram að labba heim. og fullt af fólki horfði á okkur og hló.
Svo þurftum við að fara yfir gatnamót með 4 línum, og allir í bílunum skellihlóu.
Allavega gaman að geta lyft annarra manna degi upp.

Jæja við vorum ekki nema eina klst og 15 mín (sirka áætlað) á heimleiðinni og ég svaf eins og steinn á minni nýju og flottu dýnu Laughing

Jæja ég vona að þú hafir átt góða helgi

01. nóvember 2009 klukkan 08:16
Amalía Lilja
2 athugasemdir
30október

Lífiđ og tilveran

Að verlsa sér að borða er ævintýri Tongue out því allar útskýringar á matvörum eru á pólsku. Þannig að þegar farið er að versla þá er það sko enginn skot túr, heldur tekur það svona 2-5 klst, eftir því hvað maður þarf að versla mikið. Fyrst skoðar maður einhver merki, svona til útilokunar og ef það ekki gengur þá skoðar maður utanumhaldið hvort það segji manni eitthvað til, og oft kaupir maður bara eitthvað til að prófa og lætur slag standa og vonar þetta verði bragðgott Surprised
Pólland er mikið svínakjötsland, það er hægt að kaupa svín í allrahanda skorningum og matreiðslum.
Svo þegar maður vill kaupa nautahann þá verður bara að taka pakkingu og bera litinn saman :)
nota útilokunaraðferðina , bara stemma

Allavega eiga allir sem eiga erfitt með að lesa og allir þeir sem eru nýjbúar í nýjulandi alla mína sambúð að versla sér mat.

Jæja ekki fleira að sinni,

vonandi áttu frábæra helgi Laughing

30. október 2009 klukkan 20:26
Amalía Lilja
1 athugasemd
12október

mismunandi

Ég fór í dag í bankann til að greiða húsaleiguna á heimavistinni. Ég beið í röð, alveg siðprúðuð. Það er ekki númera kerfi hérna heldur bíður maður í röð. Jæja svo kom röðin að mér og ég greiddi húsaleiguna og lét gjaldkerann fá peninginn, svo bað gjaldkerinn mig um meiri pening. Það kostar víst að greiða reikninga, maður þarf að greiða fyrir hvern reikning fyrir sig, þannig að ég þurfti að greiða 1,50 PLN fyrir að fá að greiða húsaleiguna. Ég varð nú frekar hissa, þar sem maður er nú vanur að fara í banka á íslandi og þurfa ekki að greiða fyrir þjónustuna.

Við fáum blöð frá kennara, en einungis eitt eintak þannig að maður þarf alltaf að ljósrita hvert eintak fyrir sig. Jæja það venst nú alveg, því það er mjög ódýrt að ljósrita, sem betur fer Wink

Núna er önnur vikan af skólanum hafin og það legst nú bara vel í mann

Jæja ég vona að þú eigir góðan dag

12. október 2009 klukkan 13:56
Amalía Lilja
1 athugasemd
11október

ţannig er ţađ sko

Þá er fyrsta heila skólavikan búinn. Guð hvað ég var búin að gleyma hvað er farið yfir mikið efni í einum tíma maður, en jæja þetta lagast.

Ég er í dýralíffærafræði sem er mjög áhugaverð en ég þarf að læra beinagrindina á ensku og einnig latínu, takk fyrir. 
stuð og temma Yell

Það eru tveir srtákar úr dýralæknanáminu að æfa rúbbí með The Warsaw frogs.
Og það var leikur í gær, og auðvitað fór maður til að stiðja sína menn Laughing
Ég og Annika fórum hennar bíl og vorum með kort með okkur. Jæja við vorum ekki alveg sammála hvernig ætti að lesa kortið og við viltumst aðeins, en komust samt á leikinn, viti menn.
Jédúddamía hvað þetta er harður leikur, það er bara togað í af öllu afli og tæklað á legi og láði. Margir fengu glóðurauga, með ýmsar skrámur á fótum og bólgin hné og axlir.
ÉG veit það fyrir víst að ekki langar mig að æfa þessa íþrótt.
En það var gaman að sjá einn leik og reyna skilja leikreglurnar Smile
Og við komust heilar heim, ekkert vesen


Ekki fleira að sinni, ég vona að þú hafi átt góða helgi
11. október 2009 klukkan 12:22
Amalía Lilja
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...